Sumar gömlu myndanna áttu ekki samleið með albúmi Hannesar en ég hafði þó hug á að koma þeim á framfæri við áhugasama ættingja og vini. Allar myndirnar á þessum vef tengjast kvenlegg fjölskyldu minnar og því hef ég raðað þeim upp í tímaröð með konurnar í forgrunni. Undir mörgum myndanna er hnappurinn Meiri skýringar og þar birtast meðal annars nöfn allra þeirra sem eru á myndunum. Með nokkrum hópmyndanna er líka hlekkur á vefsíðu þar sem tengsl fólksins á myndinni eru sýnd myndrænt.
Allir sem birtast á myndunum í þessum vef eru nafngreindir. Það hefur oft kostað heilabrot og kallað á aðstoð úr mörgum áttum. Ólafur Sigurðsson og Helga Kjaran hafa lagt þar mikið til og úr Fésbókar-hópnum Gamlar ljósmyndir hafa komið góðar ábendingar. Edda Þórarinsdóttir systir mín er meðhöfundur að þessum vef og átti í handraðanum nöfnin á öllum á hópmyndunum við Höfða.
Vefurinn er opinn fyrir viðbótum, bæði fleiri myndum og frekari upplýsingum.