|
|
|
Í Excel er innbyggt tól sem leitar að bestu forsendum fyrir tiltekna niðurstöðu og nefnist það Goal Seek. Það má nota til þess að skjóta á lausn diffurjöfnu með randskilyrðum.
Í sýnidæmi 3.9 á að leysa diffurjöfnuna

með randskilyrðunum y(0)=1 og y(2,5)=5. Við setjum upp lausn með upphafsskilyrðum og veljum til dæmis að láta diffurkvótann á upphafsstað y'(0) vera 1. Næst opnum við valmyndina Tools/Goal Seek og fyllum hana út eins og hér er sýnt:

Þetta þýðir:
- Látið reitinn $D$33 (þ.e. lokagildi y)
- verða 5
- með því að breyta reit $E$8 (þ.e. upphafsgildi y')
Þegar smellt er á OK leitar Excel kerfisbundið að besta upphafsgildinu og setur það inn í töfluna.
|